Tilkynning

TILKYNNING: Baldur fer til Vestmannaeyja

Tilkynning frá Ferjuleiðum ehf.

Breiðafjarðarferjan Baldur mun að ósk Vegagerðarinnar sinna áætlunarferðum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja frá og með mánudeginum 8. júní nk. Ferjan siglir yifr Breiðafjörð samkvæmt áætlun laugardaginn 6. júní og heldur svo frá Stykkishólmi sunnudaginn 7. júní. Áætlað er að Baldur hefji á ný áætlunarsiglingar um Breiðafjörð föstudaginn 19. júní.

Ferjan Baldur er í eigu Vegagerðarinnar sem getur, þegar aðstæður krefjast, ráðstafað skipinu til siglinga til og frá Vestmannaeyjum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda fyrir farþega okkar. Haft verður samband við alla þá sem eiga bókað í ferðir með Baldri, á því tímabili sem um ræðir.

Farþegabáturinn Særún, sem er í eigu Sæferða, mun sjá um siglingar til og frá Flatey á meðan. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag þeirrar þjónustu verða birtar á morgun, miðvikudag.

Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðu Ferjuleiða og hér á Facebooksíðu félagsins eftir því sem frekari upplýsingar liggja fyrir.

Tilkynningar